Allt er í heiminum hverfult, þetta erum við Íslendingar að fá að kynnast þessa dagana. Mér var sagt upp í vinnunni í seinustu viku, og fannst þetta mikið sjokka auðvitað. Síðan þá hef ég fundið fyrir öllum þeim tilfinningum sem komið hafa upp í mér, reynt að veita þeim það pláss sem þær þurftu.
Veit ekki alveg hvað ég á að skrifa hérna þar sem að þetta er fyrsta færslan mín.
Málið er samt að ég ætla að fara út í freelance vefhönnun, þá hef ég sagt umheiminum það með berum pixlum.
Ég ætla að færa inn dót hérna um vefhönnun, bæði það sem ég hef unnið í, er að vinna í og annað sem mér finnst áhugavert í faginu. Annað fær kannski að laumast með.
Takk fyrir í dag, hafið endilega samband.
g